Notkunarskilmálar
VINSAMLEGAST LESIÐ ÞESSA SKILMÁLA VANDLEGA ÁÐUR EN ÞÚ NOTAR ÞESSA VEFSÍÐU
Skilmálar þessir kveða á um reglur um um notkun vefsíðunnar okkar www.nyxoid.com ("Vefsíðan").
HVER ERUM VIÐ OG HVERNIG HAFA MÁ SAMBAND VIÐ OKKUR
Vefsíðan er á vegum Mundipharma International Limited ásamt neti tengdra sjálfstætt starfandi fyrirtækja. Hægt er að hafa samband við okkur á Unit 191 Cambridge Science Park, Milton Road, Cambridge, Bretlandi, CB4 0GW.
MEÐ NOTKUN VEFSÍÐUNNAR SAMÞYKKIR ÞÚ SKILMÁLANA
Með notkun vefsíðunnar staðfestir þú að þú hafir lesið og samþykkt þessa notkunarskilmála og skuldbindur þig til að fylgja þeim.
Ef þú samþykkir ekki skilmálana er þér óheimilt að nota vefsíðuna.
AÐRIR SKILMÁLAR SEM GÆTU ÁTT VIÐ
Eftirfarandi viðbótarskilmálar gilda einnig um notkun þína á vefsíðunni:
- Persónuverndarstefna okkar þar sem fram kemur á hvaða grundvelli við vinnum með persónuupplýsingar sem þú veitir eða við söfnum. Með notkun vefsíðunnar ábyrgist þú að allar upplýsingar sem þú veitir séu réttar.
- Vafrakökustefna okkar þar sem fram koma upplýsingar um vafrakökur á vefsíðunni og leiðbeiningar um hvernig þú getur stjórnað stillingum þeirra.
BREYTINGAR Á SKILMÁLUM
Við áskiljum okkur rétt til að uppfæra eða breyta þessum notkunarskilmálum hvenær sem er með því að birta uppfærða útgáfu á vefsíðunni. Slíkar breytingar taka gildi um leið og þær eru birtar á vefsíðunni. Við hvetjum þig til að kynna þér skilmálana reglulega til að tryggja að þú skiljir gildandi skilmála á hverjum tíma.
BREYTINGAR Á VEFNUM OG AÐGENGI
Við getum uppfært og breytt vefsíðunni reglulega meðal annars til að endurspegla breytingar á vörunum okkar, þörfum notenda eða restraráherslum. Þrátt fyrir að við leggjum okkur fram við að birta réttar og uppfærðar upplýsingar á vefsíðunni, getum við ekki ábyrgst nákvæmni þeirra og berum enga ábyrgð á villum eða annmörkum í efni hennar.
Við ábyrgjumst ekki að vefsíðan eða efni sem þar birtist sé ávallt aðgengilegt eða án truflana. Við getum tímabundið eða varanega stöðvað, takmarkað eða afturkallað aðgang að öllu eða einhverjum hluta vefsíðu okkar af viðskipta- og rekstrarástæðum.
NOTKUN EFNIS AF VEFNUM
Við erum eigandi eða leyfishafi allra hugverkaréttinda á vefsíðunni okkar og í því efni sem á henni er birt. Þessi verk eru vernduð af höfundarrétti, vörumerkjalögum og öðrum lögum og alþjóðasamningum um hugverkarétt um allan heim. Öll slík réttindi eru áskilin. Óheimilt er að nota efni af vefsíðunni í viðskiptalegum tilgangi án skriflegs leyfis frá okkur eða leyfisveitendum okkar.
Þú mátt prenta eitt eintak og hlaða niður útdrætti af hvaða síðu(m) sem er af vefsíðu okkar til persónulegra nota og þú mátt vekja athygli annarra innan fyrirtækisins á efni sem birt er á vefsíðunni.
Óheimilt er að breyta pappírs- eða stafrænum eintökum af efni sem þú hefur prentað út eða hlaðið niður á einhvern hátt og þú mátt ekki nota neinar skýringarmyndir, ljósmyndir, myndbands- eða hljóðbrot eða hvaða grafík sem er aðskilið frá þeim texta sem þeim fylgja.
Það skal ávallt koma skýrt fram að við (og þeir höfundar sem sérstaklega eru tilgreindir) erum höfundar efnisins á vefsíðunni okkar.
Ef þú brýtur gegn þessum skilmálum með því að prenta út, afrita eða hlaða niður einhverjum hluta af vefsíðunni í andstöðu við þessa notkunarskilmála, fellur réttur þinn til notkunar vefsíðuna þegar í stað niður og þú verður, eftir því sem við ákveðum, að skila eða eyða öllum afritum af efninu sem þú hefur útbúið.
UPPLÝSINGAR Á ÞESSARI VEFSÍÐU
Efni það sem birt er á vefsíðunni er eingöngu í upplýsingaskyni og fræðsluskyni. Vefsíðan kann að innihalda upplýsingar um heilsufar, sjúkdóma, meðferðir og lífstíl. Slíkar upplýsingar koma ekki í stað ráðgjafar læknis eða annars heilbrigðisstarfsfólks og ekki skal nota upplýsingarnar á þessari síðu til greiningar og meðferðar. Ráðfærðu þig alltaf við lækni og/eða annað heilbrigðisstarfsfólk varðandi heilsutengd málefni. Leita skal ráða hjá fagfólki eða sérfræðingi áður en gripið er til aðgerða á grundvelli efnissins sem birt er á vefsíðunni.
VIÐ BERUM EKKI ÁBYRGÐ Á VEFSÍÐUM SEM VIÐ VÍSUM Á
Ef vefsíðan okkar inniheldur tengla á aðrar vefsíður og efni frá þriðja aðila, er mögulegt að þær vefsíður innihaldi upplýsingar sem eingöngu eiga við um það land eða svæði þar sem viðkomandi vefur er hýstur. Slíkir tenglar eru einungis veittir þér til upplýsinga og skulu ekki túlkaðir sem samþykki eða staðfesting af okkar hálfu á þeim vefsíðum eða því efni sem þar má finna. Við höfum enga stjórn á efni þessara vefsíða né berum ábyrgð á þeim.
ÁBYRGÐ OKKAR GAGNVART TJÓNI EÐA SKAÐA SEM ÞÚ VERÐUR FYRIR
Við berum ekki ábyrgð á tjóni, beinu eða óbeinu (hvort sem um er að ræða samningsábyrgð, skaðabótaábyrgð utan samnings eða aðra ábyrgð, þar með talið án takmörkunar beint, tilfallandi, sérstækt, afleidd, óbeint eða refsikennt tjón) sem stafa af eða tengjast:
- notkun á, eða vanhæfni til að nota vefsíðu okkar; eða
- notkun á eða trausti á innihaldi eða efni sem birt er á vefsíðu okkar eða þaðan er vísað.
Einkum berum við ekki ábyrgð á:
- tapi á hagnaði, sölu, rekstri eða tekjum;
- truflunum á rekstri;
- tapi á væntanlegum sparnaði;
- tapi á viðskiptatækifærum, viðskiptasamböndum eða orðspori; eða
- beinu eða afleiddu tjóni eða skaða.
Takmarkanir gilda nema annað sé tiltekið í gildandi lögum.
FYRIRVARI ÁBYRGÐAR
Upplýsingar og efni á vefsíðunni eru veitt „eins og þau eru“ og án nokkurrar ábyrgðar, hvorki beinnar né óbeinnar . Að því marki sem heimilt er samkvæmt gildandi lögum:
- Afsölum okkur allri ábyrgð á fullnægjandi gæðum efnisins og hæfi þess í tilteknum tilgangi.
- Ábyrgjumst ekki að virkni þessarar vefsíðu verði óslitin eða villulaus, að gallar verði leiðréttir eða að vefsíðan eða netþjónninn sem hýsir hana sé laus við vírusa eða aðra skaðlega íhluti.
- Við ábyrgjumst ekki né gefum neinar yfirlýsingar varðandi notkun eða notagildi upplýsinga eða efnis á þessari síðu hvað varðar réttmæti þeirra, nákvæmni, áreiðanleika eða annað.
VIÐ BERUM EKKI ÁBYRGÐ Á VÍRUSUM OG ÞÚ MÁTT EKKI SETJA VÍRUS Á SÍÐUNA
Við ábyrgjumst ekki að vefsíðan okkar sé örugg eða laus við villur, galla eða vírusa. Þú berð ábyrgð á öryggisstillingum tölvu- og hugbúnaðar þíns sem þú notar til að fá aðgang að vefsíðunni. Þú ættir að nota viðeigandi vírusvarnarhugbúnað.
Þér er óheimilt að misnota vefsíðu okkar með því að koma vísvitandi vírusum, trójuhestum, orma, rökréttum sprengjum (logic bombs) eða öðru skaðlegu eða eða tæknilega skemmandi efni. Þú mátt ekki reyna að fá óheimilan aðgang að vefsíðu okkar, netþjóninum þar sem það er hýst, eða neinum netþjóni, tölvu eða gagnagrunni sem tengist vefsíðunni. Þér er jafnframt óheimilt að ráðast á vefsíðu okkar með þjónusturofsrárás eða dreifðri þjónusturofsárás. Slík brot verða tilkynnt til viðeigandi yfirvöldum og þeim veitt upplýsingar um auðkenni þitt ef þess er krafist. Komist upp um slíkt brot fellur réttur þinn til að nota vefsíð okkar þegar í stað niður.
REGLUR UM TENGINGAR VIÐ VEFSÍÐU OKKAR
Tenging (link) við þessa vefsíðu er ekki heimiluð án skriflegs leyfis frá okkur. Til að fá leyfi til að tengja á þessa vefsíðu, vinsamlegast hafið samband við licensing@mundipharma.com.
LÖG HVERS LANDS GILDA UM ÞESSA VEFSÍÐU OG UM ÖLL DEILUMÁL
Internetið er alþjóðlegt að eðlisfari en lögin sem gilda um það hvernig lyfjafyrirtæki miðla læknisfræðilegum upplýsingum eða upplýsingum um vörur eru háð reglum hverju landi fyrir sig. Því geta upplýsingar sem ætlaðar eru til dreifingar í tilteknu landi verið óviðeigandi eða ófullnægjandi til notkunar utan þess lands.
Upplýsingarnar á þessari vefsíðu eru ætlaar til að uppfylla ensk lög og eru unnar með hliðsjón af siðareglum ABPI (Association of British Pharmaceutical Industry) frá 2021, sem setja staðla fyrir miðlun upplýsinga til almennings og heilbrigðisstarfsfólks í Bretlandi. Þótt vefsíðan sé ekki sérstaklega ætluð breskum notendum eru siðareglur ABPI vel þekktar og virtar og krefjast mikillar fagmennsku í upplýsingagjöf. Þú ættir ekki að túlka neitt á þessari vefsíðui sem kynningu eða hvatningu til markaðssetningar eða notkunar á neinni vöru sem er ekki heimil samkvæmt lögum og reglugerðum þess lands þar sem þú ert staðsett(ur). Gestum vefsíðunnar er bent á að kynna sér sjálfir staðbundnar ábendingar, leyfisskilmála og lög sem gilda um vörur, meðferðir eða ráðleggingar sem nefndar eru á vefsíðunni.
Þessir notkunarskilmálar, efni þeirra og framsetning, lúta að enskum lögum. Öll ágreiningsmál sem kunna að koma upp vegna þessara skilmála, efnis þeirra eða framsetningar (þar með talið ágreiningur sem fellur utan samnings), skulu borin undir lögbæra dómstóla í Englandi og Wales.
Ef eitthvert ákvæði þessara notkunarskilmála reynist ólögmætt, ógilt eða af einhverjum ástæðum óframkvæmanlegt, skal það ákvæði teljast aðskiljanlegt frá þessum notkunarskilmálum og skal ekki hafa áhrif á gildi eða framkvæmd annarra ákvæða.
SKRÁÐ VÖRUMERKI
NYXOID er skráð breskt vörumerki í eigu Mundipharma AG.
Þér er ekki heimilt að nota þetta vörumerki án okkar samþykkis, nema það sé hluti af efni sem þú notar í samræmi við heimildirnar sem tilgreindar eru í kaflanum „Hvernig þú mátt nota efni á vefsíðunni okkar“ (hér að ofan).
LEYFILEG NOTKUN
Þessar upplýsingar um leyfilega notkun gilda um alla notendur vefsíðunnar og alla gesti hennar. Vinsamlega athugið að vefsíðan er ekki ætluð börnum.
Með því að nota vefsíðuna samþykkir þú að fylgja öllum skilmálum um leyfilega notkun, sem eru viðbót við notkunarskilmála okkar hér að ofan. Þú ábyrgist og staðfestir að þú hafir lagalegan rétt, hæfni og getu til að samþykkja að fara eftir þessum upplýsingum um leyfilega notkun og notkunarskilmálunum og að þú munir nota vefsíðuna í samræmi við þau. Vinsamlega lestu einnig persónuverndarstefnu okkar varðandi notkun persónuupplýsinga sem safnað er í gegnum vefsíðuna.
BÖNNUÐ NOTKUN
Þú mátt eingöngu nota vefsíðuna okkar í lögmætum tilgangi. Þú mátt ekki nota vefsíðuna:
- Á nokkurn hátt sem brýtur gegn gildandi lögum eða reglugerðum á staðnum, á landsvísu eða á alþjóðalegum vettvangi.
- Á nokkurn hátt sem er ólöglegur eða sviksamur eða hefur ólöglegan eða sviksamlegan tilgang eða áhrif.
- Í þeim tilgangi að skaða eða reyna að skaða fullorðna og/eða ólögráða börn á nokkurn hátt.
- Til að senda, taka við, hlaða upp, hlaða niður, nota eða endurnýta efni sem ekki er í samræmi við efnisstaðla okkar, eins og fram kemur hér að neðan.
- Til að senda eða fá sent óumbeðnar eða óheimilar auglýsingar, kynningarefni eða sambærilegar beiðnir (ruslpóst).
- Til að senda vísvitandi gögn, eða hlaða upp efni sem inniheldur vírusa, trójuhesta, orma, tímasprengjur, lyklaborðsskráningarforrit, njósnahugbúnað, auglýsingahugbúnað eða önnur skaðleg forrit eða sambærilegan tölvukóða sem er hannaður til að hafa skaðleg áhrif á virkni hugbúnaðar eða vélbúnaðar.
Þú samþykkir jafnframt að ekki megi:
- endurskapa, afrita, fjölrita eða endurselja neinn hluta af vefsíðunni í andstöðu við notkunarskilmálanna..
- fá óheimilan aðgang að, trufla, skemma eða raska:
- neinum hluta af vefsíðunnar;
- neinum búnaði eða neti þar sem vefsíðan er hýst;
- neinum hugbúnaði sem notaður er við veitingu eða rekstur vefsíðunnar; eða
- neinum búnaði eða neti eða hugbúnaði sem þriðju aðilar eiga eða nota.
SVIPTING OG LOKUN AÐGANGS
Við munum meta og ákvarða hvort brotið hafi verið gegn leyfilegri notkun á vefsíðu okkar. Þegar slíkt brot hefur átt sér stað getum við gripið til þeirra aðgerða sem okkur þykir viðeigandi.
Brot á skilmálum vefsíðunnar, sem veita þér leyfi til að nota vefsíðuna, getur leitt til þess að við grípum til einnar eða fleiri af eftirfarandi aðgerðum:
- Tafarlaus, tímabundin eða varanleg afturköllun á rétti þínum til að nota vefsíðuna.
- Tafarlaus, tímabundin eða varanleg fjarlæging á færslum eða öðru efni sem þú hefur hlaðið inn á vefsíðuna.
- Viðvörun gefin út.
- Lögsókn til að endurheimta allan kostnað á grundvelli skaðabóta (þar með talið, en ekki takmarkað við, sanngjarnan stjórnunar- og lögfræðikostnað) sem hlýst af brotinu.
- Frekari lagalegar aðgerðir gegn þér.
- Miðlun slíkra upplýsinga til löggæsluyfirvalda ef við teljum nauðsynlegt eða réttmætt.
Við berum ekki ábyrgð á aðgerðum sem gripið er til í tenglsum við brot á þessum upplýsingum um leyfilega notkun. Viðbrögðin sem hér er lýst eru ekki tæmandi og við áskiljum okkur rétt til að grípa til annarra aðgerða sem okkur kann að þykja viðeigandi.
BREYTINGAR Á UPPLÝSINGUM UM LEYFILEGA NOTKUN
Við getum endurskoðað þessar upplýsingar um leyfilega notkun hvenær sem er með því að breyta þessari vefsíðu. Allar breytingar taka gildi við næstu heimsókn þína á síðuna. Þú ert hvött/hvattur til að yfirfara þessar upplýsingar reglulega til að fylgjast með þeim breytingum sem við kunnum að gera, þar sem þær eru lagalega bindandi fyrir þig. Sum ákvæði í upplýsingum geta einnig verið leyst af hólmi með ákvæðum eða tilkynningum sem birtar eru annars staðar vefsíðunni.
Uppfært: Júlí 2025