Persónuverndarstefna

Þessi vefsíða er á vegum Mundipharma International Limited ("Mundipharma") og tengdum sjálfstætt starfandi fyrirtækjahópi þess sem inniheldur önnur Mundipharma fyrirtæki og NAPP Pharmaceuticals, (vísað hér til sem "Mundipharma", "við" eða "okkur"). Vefsíðan notar persónuupplýsingar þínar, einnig vísað til á þessari síðu sem "við" eða "okkur" eða "okkar". Þessi vefsíða er ætluð bæði almenningi og heilbrigðisstarfsfólki.

Vinsamlegast lestu eftirfarandi vandlega.

Athugið að persónuverndaryfirlýsingin nær ekki yfir vefsíður þriðju aðila sem tengt er í gegnum hlekki eða hnappa á þessari vefsíðu. Slíkar vefsíður geta haft sína eigin skilmála og persónuverndarstefnu. Við berum ekki ábyrgð á efni, skilmálum eða persónuverndarstefnu annarra vefsíðna.

Þessi vefsíða er ekki ætluð börnum (yngri en 16 ára). Hins vegar getur forráðamaður barns tekið ákvarðanir samkvæmt þessari friðhelgisstefnu fyrir hönd barnsins.

EFNI:
1) PERSÓNUUPPLÝSINGAR SEM SAFNAÐ ER Á ÞESSARI VEFSÍÐU.
2) PERSÓNUUPPLÝSINGAR SEM SAFNAÐ ER ANNARS STAÐAR FRÁ
3) LAGAGRUNDVÖLLUR FYRIR VINNSLU UPLÝSINGA ÞINNA
4) MIÐLUN PERSÓNUUPPLÝSINGA
5) SENDING PERSÓNUUPPLÝSINGA Á NETINU
6) GEYMSLA GAGNA
7) SJÁLFVIRK ÁKVARÐANATAKA
8) RÉTTINDIN ÞÍN
9) HAFA SAMBAND

Ef þú hefur einhverjar spurningar varðandi þessa persónuverndarstefnu, vinsamlega hafðu samband með tölvupósti: privacy@mundipharma.com

Þessi persónuverndarstefnu er endurskoðuð og uppfærð reglulega. Ef við uppfærum hana birtum við tilkynningu á heimasíðunni eða með öðrum hætti. Vinsamlegast athugaðu það reglulega ef þú heldur áfram að nota vefsíðuna.

1) PERSÓNUUPPLÝSINGAR SEM SAFNAÐAR ERU Á ÞESSARI VEFSÍÐU

Mundipharma er ábyrgðaraðili (data controller) vegna notkunar þessarar vefsíðu. Mundipharma getur safnað persónuupplýsingum sem þú veitir, þar á meðal:
nafn þitt og aðrar samskiptaupplýsingar;

  • Afritum af samskiptum þínum við okkur, t.d. tölvupóstum
  • Upplýsingum um notkun þína á þessari vefsíðu;
  • Tæknilegum gögnum, svo sem IP-tölu, vafra og stýrikerfi.

Persónuupplýsingarnar verða notaðar í eftirfarandi tilgangi:
Að veita upplýsingar, m.a. um vörur, meðferðarsvið og þjónustu

  • Að skilja þarfir okkar og bæta vörur/þjónustu
  • Tæknilegs stuðnings og til að tryggja að innihald birtist rétt
  • Í þeim tilgangi sem lýst er í öðrum köflum þessarar persónuverndarstefnu.

Við gætum einnig notað persónuupplýsingar þínar til að uppfylla lagaskyldur eða með samþykki þínu.

Við vissar aðstæður kannt þú að láta Mundipharma í té persónuupplýsingar beint, til dæmis í gegnum tengiliðaupplýsingarnar á síðunni „Tengiliðir“. Í slíkum tilfellum verður persónuupplýsingum þínum safnað og unnið með þær í þeim tilgangi sem lýst er hér að ofan.

2) PERSÓNUUPPLÝSINGAR SEM SAFNAÐAR ER ANNARS STAÐAR FRÁ

Mögulegt er að við notum persónuupplýsingar þínar í öðrum tilgangi og er sérstök upplýsingayfirlýsing tiltæk fyrir þá notkun. Varðandi frekari upplýsingar um tilkynningar um aukaverkanir og gagnsæi, vinsamlegast skoðið upplýsingayfirlýsingarnar sem eru aðgengilegar á vefsíðum okkar. Fyrir frekari upplýsingar um gagnavinnslu okkar, vinsamlegast skoðið persónuverndaryfirlýsingu(r) á vefsíðum okkar.

3) LAGAGRUNDVÖLLUR FYRIR VINNSLU UPPLÝSINGA ÞINNA

Stuðst er við lagalegan grundvöll þegar unnið er með persónuupplýsingar. 

Sá grundvöllur er skráður í innri skrám okkar. Vinnsla persónuupplýsinga er almennt vegna eins eða fleiri af eftirfarandi:

NotkunLagalegur grundvöllur
Að bæta vörur okkar, þjónustu og stafræn samskipti, þar með talið að nýta gagnagreiningu til að bæta hvernig við vinnum.Lögmætir hagsmunir okkar, nema þegar við þurfum samþykki þitt
Að svara spurningum þínum eða beiðnum, uppfylla ákveðnar persónulegar kröfur eða óskir og meðhöndla kvartanir
Að uppfylla lagalegar og siðferðilegar skyldur okkar, innri reglur fyrirtækisins og stöðlum innan atvinnugreinarinnar, til dæmis með því að birta upplýsingar um greiðslur eða önnur  verðmæti sen færð eru til þín til að uppfylla gagnsæisskyldur okkar.Að uppfylla lagalegar skyldur okkar, þegar vinnslan er í almannaþágu eða þjónar lögmætum hagsmunum okkar. Við kunnum að óska eftir  samþykki þínu til að birta upplýsingar um greiðslur sem greiddar hafa verið til þín á einstaklingsgrundvelli.
Greina og rannsaka skaðlega háttsemi, þar á meðal hvers kyns misnotkun eða árásir á netkerfi okkar, ásakanir um ámælisvert athæfi eða aðra háttsemi sem er skaðleg fyrir starfsemi okkar, og grípa til fyrirbyggjandi ráðstafana til að koma í veg fyrir slíka háttsemi.
Áreiðanleikakannanir, kannanir á ágreiningi og upplýsingagjöf í tengslum við lögfræðilega málsmeðferð, kaup eða sölu á viðskiptalegum eignum eða rekstri, eða til að svara beiðnum um upplýsingar frá stjórnvöldum eða eftirlitsaðilum.

4) MIÐLUN PERSÓNUUPPLÝSINGA

Við kunnum að miðla persónuupplýsingum þínum til fyrirtækja innan Mundipharma samstæðunninar, bæði innan í Bretlands og á Evrópska efnahagssvæðinu, sem og  til aðila utan þess, sem veita upplýsingatæknilegan stuðning eða aðra þjónustu, svo sem á sviði mannauðsmála, fjármála eða fyrirtækjasamskipta. Slík miðlun getur einnig átt sér stað til eftirfarandi viðtakenda:

Umboðsmanna, þjónustuveitenda og viðskiptaaðila, eftir því sem þeir hafa þörf fyrir upplýsingarnar til að veita Mundipharma þjónustu; til dæmis:

  • Tæknilegra þjónustuaðila, sem annast hýsingu, þróun, rekstur og viðhald stafrænnar innviða og þjónusta, svo sem SheShe Ltd;
  • Opinberra aðila, þar á meðal ríkisstofnana, eftirlitsaðila og annarra stjórnvalda; 
  • Almennings, þegar það er nauðsynlegt til að uppfylla lögbundnar gagnsæisskyldur okkar; 
  • Lögfræðiráðgjafa, endurskoðenda, lánveitenda, tryggingaaðila, ráðgjafa og sambærilegra þjónustuveitenda, sem veita Mundipharma sérfræðilega aðstoð; 
  • Annan lögpersónu eða viðskiptalegan aðila (ásamt ráðgjöfum hans), í tengslum við viðskiptaleg umskipti, þar á meðal yfirfærslu rekstrar, kaup eða sölu eigna eða aðrar breytingar á eignarhaldi innan Mundipharma samstæðunnar.

Alþjóðlegir gagnaflutningar: Ef gögn eru flutt út fyrir Bretland eða Evrópska efnahagssvæðið munum við grípa til viðeigandi verndarráðstafana, svo sem með stöðluðum samningsákvæðum og (ef nauðsyn krefur) viðbótarráðstafana, til að tryggja fullnægjandi vernd persónuupplýsinga  þegar þeim er miðlað með löndum þar sem slíkur flutningur er ekki verndaður með fullnægjandi hætti. Við kunnum að miðla persónuupplýsingum þínum með stjórnvöldum, eftirlitsaðilum eða til að uppfylla lagaskyldur okkar.

5) SENDING PERSÓNUUPPLÝSINGA Á NETINU

Þrátt fyrir að Mundipharma beiti viðeigandi og viðurkenndum öryggisráðstöfunum til að vernda persónuupplýsingar þínar, er ekki unnt að tryggja öryggi gagna sem send eru í gegnum internetið. Allar upplýsingar sem þú sendir með tölvupósti eða öðrum rafrænum miðlum eru sendar á þína eigin ábyrgð. Þegar Mundipharma hefur móttekið persónuupplýsingar þínar munum við varðveita þær í samræmi við innleiddar öryggisreglur okkar og viðeigandi varúðarráðstafanir, með það að markmiði að koma í veg fyrir óheimilan aðgang, breytingar eða tap gagna.

6) GAGNAVARÐVEISLA

Við varðveitum persónuupplýsingar þínar í samræmi við geymslustefnu okkar. Almennt varðveitum við persónuupplýsingar aðeins þann tíma sem nauðsynlegur er til að uppfylla þau markmið sem upplýsingarnar voru upphaflega safnaðar fyrir, nema lengri varðveislutími sé krafist eða heimilaður samkvæmt lögum eða við höfum gildar og málefnalegar ástæður til lengri varðveislu.

7) SJÁLFVIRK ÁKVÖRÐUNARTAKA

Þú munt ekki verða fyrir ákvörðunum sem hafa veruleg áhrif á þig og byggjast eingöngu á sjálfvirkri ákvarðanatöku, nema við höfum lögmætan grundvöll fyrir slíkri vinnslu og höfum upplýst þig um það sérstaklega.

8) RÉTTINDI ÞÍN

Þú hefur eftirfarandi réttindi:

  • Að óska eftir upplýsingum um vinnslu persónuupplýsinga þinna;
  • Að óska eftir afriti af persónuupplýsingum þínum, fá þær leiðréttar og/eða eytt;
  • Ef þú hefur veitt samþykki fyrir vinnslu persónuupplýsinga getur þú afturkallað samþykkið, með ákveðnum undantekningum. Afturköllun samþykkis hefur þó ekki áhrif á vinnslu sem byggist á samþykki áður en því  var afturkallað;
  • Ef þú hefur veitt persónuupplýsingar í tengslum við samning eða með samþykki, eða ef þær eru unnar með sjálfvirkum hætti, getur þú einnig óskað eftir að fá persónuupplýsingar afhentar á tölvulesanlegu formi eða óskað eftir að þær verði fluttar til annarrar stofnunar;
  • Þú getur mótmælt vinnslu persónuupplýsinga þinna ef vinnslan er í markaðssetningartilgangi, vegna verkefna  í almannaþágu eða á grundvelli lögmætra hagsmuna okkar. Þessi réttur er þó ekki algildur;

Í ákveðnum tilvikum getur þú óskað eftir því að vinnsla persónuupplýsinga þinna verði takmörkuð, til dæmis ef þú vilt staðfesta nákvæmni upplýsinganna eða ef þú hefur mótmælt vinnslunni.

Ef þú vilt nýta þér einhver þessara réttinda getur þú haft samband við okkur með því að nota upplýsingarnar sem tilgreindar eru í hlutanum „Tengiliðir“ í þessari yfirlýsingu.

Ef þú ert óánægður með hvernig  við vinnum með persónuupplýsingar þínar getur þú lagt fram kvörtun til viðeigandi eftirlitsstofnunar í þínu landi. Á Íslandi er það Persónuverndarstofnun (https://island.is/s/personuvernd). Við metum það mikils að fá tækifæri til að taka á áhyggjum þínum fyrst. Vinsamlegast hafðu samband við okkur áður en þú leitar til eftirlitsstofnunar.

9) HAFA SAMBAND

Þú getur haft samband við okkur á privacy@mundipharma.com eða c/o Legal and Compliance, Mundipharma Research Limited, Unit 196 Cambridge Science Park, Milton Road, Cambridge, CB4 0AB ef þú hefur einhverjar spurningar eða áhyggjur varðandi vinnslu persónuupplýsinga þinna. Vinsamlegast lýsti sambandi þínu og/eða samskiptum við okkur og veittu nánari upplýsingar um beiðni þína þegar þú hefur samband við okkur.

Ef þú ert ekki ánægð(ur) með þann hátt sem við vinnum með persónuupplýsingar þínar, hefur þú rétt til að leggja fram kvörtun til viðeigandi eftirlitsstofnunar í þínu landi. Við kunnum þó að meta það mjög að fá tækifæri til að bregðast fyrst viðá áhyggjum þínum áður en þú hefur samband við eftirlitsstofnunina. Vinsamlegast hafðu því samband við okkur fyrst.

Uppfært: júlí 2025.